21febrúar

Tengdó.. Já.

Ok, einsog allir landsmenn vita var hjartaknúsarinn Jude Law himelf hér á landi í síðustu viku. Hann kom hingað í frí með börnum sínum og meðal annars kíktu þau í Árbæjarlaugina, skauta, hestbak og fengu að sjá settið hjá Lazy Town.

Ekki nóg með það.. Þau voru sko ekkert ein! Hin eina sanna Halla Vilhjálms, sem hefur núna by the way sett Xið í factorinn, var með þeim!
Sögur herma að þau hafi verið náin allan þennan tíma og hafi farið saman útað borða á Domo.. Og kíkt svo út á lífið, hiti verið í loftinu og þau kelað á miðju dansgólfi á Sirkus Reykjavík og farið svo út og í burtu saman!



Mín kona, komin í fréttirnar hjá slúðurblaðinu Sun !
Þarna finniði frétt sem var gefin út í gær..
Mér finnst þetta ógó spennó sko! ;)
Verður Jude tengdasonur Íslands?



21. febrúar 2007 klukkan 16:47
Glingló
Engin athugasemd
25janúar

Ísland er land þitt.. Nei

Ágæti forseti og háttsettir þingmenn!

Nú hefur þessi blessaða ríkisstjórn farið með allt norður og niður! Og Þorgerður Katrín má sjúga hann feitan, þó hún sé frænka mín! Ég set hana á bannlista þegar kemur að næstu jólakortaskrifum.

Ekki er vandað til verka á Alþingi, svei mér þá!

Þannig er mál með vexti að samþykkt voru lög á þingi rétt í þessu.. (Ok Alþing? Já, var hjá ömmu og lenti í smá tv glápi! Gláp hjá henni = Þingið á RUV) ..að setja nefskatt á Ríkisútvarpið! Með því hafa þeir hækkað gjaldið fyrir bæði útvarp og sjónvarp úr 2.500 kr á mánuði í 15.000 kr á einstakling í fjölskyldu! Þannig að héðan í frá borgum ég og Kristinn bróðir samanlagt 30.000 fyrir sjónvarpstöð og útvarp sem við getum nú alveg sagt að sé useless í okkar lífum! (Garðar bróðir sleppur) Foreldrar okkar borga svo 30.000 samanlagt einnig og þar sem ég efast um að við eigum nokkurn tímann eftir að greiða þetta þá greiða mamma & pabbi 60.000 kr. á mánuði fyrir RÚV sem er bara til háborinnar skammar! Hvað með þá sem minna mega sín???? Það eru til big ass fjölskyldur hér á landi sem hafa ekki nema 50.000 kr í mánaðartekjur fyrir utan skatt! Á að setja þá aðila á hausinn fyrir útvarps og sjónvarps afborganir? Þetta er eigingirni og sýnir bara hvað þessir stjórnarmenn eru miklar blöðrur, ættu að skammast sín og líta aðeins í kringum sig! Þetta er nú ekkert eins dæmi, þeir hafa margt niðrum sig varðandi lög og reglur í þessu landi og ættu að gá að stafsetningarvillum í þessum pappírum sínum og gera greinarskil á því sem þeir eru að gera! Þessu má líkja við dansandi geðveiki.


Helgin mín var nú samt ágæt..
Ég drakk mig fullkomlega í gólfið báða dagana. Ég get ekki greint föstudaginn frá laugardeginum svo að það er óþarfi að vera blogga eitthvað um það. Annars hef ég það mjög fínt.. Right.

Fyrr heiti ég Sigríður í súrum pælingum..
25. janúar 2007 klukkan 01:23
Glingló
2 athugasemdir
24desember







GLEÐILEG JÓL.. ;)

24. desember 2006 klukkan 19:36
Glingló
Engin athugasemd
13desember

aha

;)


Á morgun er mín búin í prófum! Hvernig og hvenær verður próflokadjammið þitt? Ég veit að við vinkonurnar erum með mjög þétt skipaða helgi.. skemmtilega helgi..
Ætlar mikið af suðurnesjafólkinu að fjölmenna á Pravda á laugardaginn? I need answers!
Hvað er í boði??


13. desember 2006 klukkan 04:52
Glingló
5 athugasemdir
20nóvember

Smá update

Vávává langt síðan síðast!

Allaveganna við stelpurnar í vinkonuhópnum erum komnar með heimasíðu allar saman af því það er svo sniðugt! Þið skiljið.. ;) Og mest allur minn tími á netinu fer í þá heimasíðu. Þetta saklausa fórnarlamb er heldég bara að renna út?

Nei nei, það mun ekkert gerast! ;)


Ein svona sæt og gömul mynd af nokkrum vel þekktum einstaklingum kvenþjóðarinnar hérna í Suðurkjördæmi.


Allir fögnuðu komu prófanna vel um helgina. Ég setti inn myndir frá því inná Lc. Endilega skoða þær þar ef þið hafið áhuga. Svo eru það bara skemmtilegheit framundan! Vinna, læra, prófin og mikið nammiát í kjölfar komu þeirra.. Við verðum allar bólóttar, feitar og uppþornaðar milli jóla og nýárs.

Fyrir þá sem ekki skoða LazyClub þá setti ég inn þetta hér:

1.
Hvað kallarðu mig?
2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?
3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?
4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?
5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?
6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
8. Hvernig stelpa er ég, og hvaða týpu flokkarðu mig?
9. Hvað erum við mörg í fjölskyldunni?
10. Hefurðu öfundað mig? Hvers vegna?
11. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
12. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
13. Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
14. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?
15. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
16. Hvernig stráka fíla ég?
17. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
18. Hvað er mest einkennandi við mig?
19. Hvaða búðir elska ég að fara í?

Ef þið nennið, endilega svarið þessum skemmtilegu spurningum :o)



Og fyrir þá sem ekki vita þá er síða hárið farið! :)

Sí og æ Eygló

20. nóvember 2006 klukkan 21:02
Glingló
7 athugasemdir
11september

Hryðjuverk.is

11. september
Langaði bara að skrifa það.
en samt megi sá dagur hvíla í friði.


..Og hafa mynd af Cole með, afþví hún er bandaríkjakona..
Við elskum Keyshu Cole! Og þú líka.

Já og ég bjargaði lífi á Laugardaginn.. Ég er Guð þinn góður.

Heilsa Al Kaída
(fyrirsætan)
11. september 2006 klukkan 20:48
Glingló
7 athugasemdir
10september

Im married to a superstar!?

Kevin Federline er búin að gefa út myndband. Ég veit ekkert hvort það er nýtt eða hvað en ég veit fyrir víst að það er glatað! Þið getið kíkt á það hérna: http://music.yahoo.com/ar-27916334---Kevin-Federline


10. september 2006 klukkan 00:31
Glingló
Engin athugasemd
09september

Throw a dub.

Það eru komnar inn myndir frá fimmtudeginum.
Og hjá Tinnu
www.picturetrail.com/heili




Meira hvað maður getur verið ruglaður.
Ég lenti í því á ljósanótt þegar ég var að labba upp stigann á hápunktinum að það kom strákur eða frekar maður uppað mér og segir ,,hæ glingló?" Og ég nb einsog asni veit ekkert hver þetta er! Aldrei séð hann áður og horfi bara. Þá segir hann ég er með þig á Myspace! Og allar stelpurnar slefuðu af hlátri. Greyið gæinn var einsog fífl þegar hann sagði svo ,,kannastu ekkert við mig?" Ég hristi hausinn með því að svara neikvætt og labba í burtu orðlaus. Þetta var frekar óþæginlegt. Lenti í svipuðum atvikum um verslunarmannahelgina með þetta svokallaða vinafólk mitt á Myspace for crying out loud! Er þetta það nýjasta í pickup línu bransanum? Einn gekk það langt að láta mig fá númerið sitt. Ok alltílæ svo lengi sem ég gef ekki upp mitt, ég og Tinna ákváðum að fucka aðeins. Gaurinn leit nú heldur ekki út fyrir að vera einhvað nettur.
Já og ég og Tinna fkum aðeins í honum, úr mínu númeri! Dömmí. Eftir eitt skilaboð til hans sem btw innihélt meinlaus orð í einsog hæ, stemmning, hvar, os.frv. Þá hefur sá hinn sami ekki hætt. Við sitjum uppí húsi að horfá Gilmore girls og alltí einu hringir hann! Og það ekki bara einu sinni?!! Eftir það fáum við sms!? Og það líka í svo tugum skipta! Rekumst á hann svo niðrí bæ einsog nörrar og reynum að hunsa. Hann alltaf í sjónlægð. Förum á Strikið á Akureyri, á hans kost, ok einn sjéns. Spjöllum, hann er leiðinlegur, förum. Fleiri fleiri smsum rignir í okkur og hann er skotin. Skotin í mér.. Þá slekk ég á símanum og passa að týna ekki Tinnu. Eftir þessa helgi þá förum við stelpurnar í bæinn á hverfis, han er þar. Greit. Hann er það fullur samt að hann gerir engan skunda! Svo hittum við hann á Pravda á menningarnótt. Ógeðslega fullur og alltaf að grípða og káfa. Endar með því að við rúllum niður og út. Þessi náungi er reyndar hættur að essemmessa í bili en sendir á milli mail á myspace. Léttir!
Ég held að þetta myspace dæmi sé stundum eitthvað annað en bara skemmtilegt. Fékk póst um daginn sem sagði að stelpa hefði verið hrottalega myrt af net vini sínum sem hún eignaðist í gegnum myspace. Svo það var ekki betra þegar Guðmunda sagðist þekkja til ljósanæturgaursins og sagði hann vera algjöran stalker! Hún og aðrar hefðu lent í honum.
Ég er svo heppinn alltaf.





Ég tók eftir því á busaballinu að það var mikið um kelerí hjá busunum og ári eldra. Eru það árgangar ástarinnar? Mér finnst svoleiðis dæmi, þið vitið múvið þar sem par slash "við fyrstu kynni" lið er að kyssast og getur ekki andað fyrir slefinu á hvor öðru og þarf að taka pásu í 2sec á milli svo það deyji ekki, ekki smart. Frekar meira hallæris. Afhverju? Afhverju ekki bara að fara, nota gamla frasann "getaroom!" Í staðinn fyrir að vera þarna einsog einhverjir pallar útí horni, upp við vegginn, á miðju gólfi að kyssast?? Ég hef allaveganna aldrei skilið það. Er það athyglin? Komast í slúðrið. Ætli þetta lið hafi verið huxa um b.guðlaugs (ekki gaurinn samt) þegar það var að kyssast. Er það ekki aðal málið í dag? Að komst þangað? æ é vitiggi. Pop.
 
Jæja, þetta er orðið ansi langt...
Þangað til næst..
..Throw a dub! Nákvæmlega einsog þessi -






09. september 2006 klukkan 21:31
Glingló
2 athugasemdir
06september

myndir myndir myndir

Fullt af nýjum myndum!! Bæði hjá mér og Bergrósu! ;)
< enjoy >


Ein ógeðslega pirruð, búnar að bíða eftri Taxa í tæpan klukkutíma! Semsagt fastar í La Marina, ekki það besta. Plús, komnar yfir Limit í hraðbönkum bæjarins!! Enginn peningur fyrir Taxa heldur.


Sigga án efa hrakfallabálkur ferðarinnar! Þrjú skipti á slysó? Geri aðrir betur, og það á Spáni.


Fyrir utan risa hótelið þeirra. Hvar er Sigga samt? Og Arndís einfætt.
06. september 2006 klukkan 23:07
Glingló
2 athugasemdir
03september

Sosasasasa

Sagan segir að tveir vinir hafi gengið í eyðimörk. Á leiðinni fóru þeir að rífast, og annar vinurinn gaf hinum létt á kjammann. Honum sárnaði en án þess að segja nokkuð skrifaði hann í sandinn: "Í DAG GAF BESTI VINUR MINN MÉR EINN Á'ANN!"
Þeir gengu áfram þar til þeir komu að vatnslind og þar fóru þeir út í. Vinurinn sem hafði orðið fyrir hinum áður var nærri druknaður, en var bjargað af vini sínum. Þegar hann hafði jafnað sig risti hann í stein: "Í DAG BJARGAÐI BESTI VINUR MINN MÉR FRÁ DRUKNUN"
Vinurinn sem bæði hafði veitt honum tiltal og bjargað honum spurði: "Þegar ég sló þig, skrifaðir þú í sandinn og núna skrifar þú í steininn. Af hverju?"
Hann svaraði: "Þegar einhver gerir þér eitthvað illt áttu að skrifa það í sandinn, þar sem vindur fyrirgefningar getur eytt því. En þegar einhver gerir þér eitthvað gott þá áttu að grafa það í stein þar sem enginn getur eytt því.
03. september 2006 klukkan 20:31
Glingló
Engin athugasemd

Velkomin ;)

Endilega kvittid fyrir komuna..

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Valbjargar myndir